Ég kom í heiminn klukkan 08:16 þann 9.október 2005 á Landspítalanum í Reykjavík, ég var 3325 gr. og 50 cm., eða rétt rúmlega 13 merkur.
Mamma mín og pabbi eru Sölvi Borgar Sighvatsson og María Hrönn Guðmundsdóttir.
Þegar ég kom í heiminn var ég með mikið -og næstum bara sítt- dökkt hár og alveg eins og pabbi minn bara, nema að sjálfsögðu aðeins sætari!
Núna er búið að læsa síðunni, en endilega ekki hika við að spyrja mömmu eða pabba um aðgangsorðið.
Vingjarnleiki
Vogarbarnið er yfirleitt þægilegt viðureignar, ljúft og skapgott. Það er að upplagi glaðlegt og broshýrt og getur verið aðlaðandi og vingjarnlegt. Það kemur fljótt í ljós að Vogin er merki félagslegrar samvinnu.
Fegurð
Vogin er listræn og fegurðarelskandi. Mikilvægt er að foreldrar hlúi að þessum eiginleikum og skapi barninu aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína. Að sama skapi er mikilvægt að foreldrar taki tillit til þess að umhverfi barnsins þarf að vera litríkt og fallegt. Það þarf að geta skreytt herbergi sitt og æskilegt er að það geti átt falleg föt sem eiga vel saman hvað varðar liti og þess háttar. Vogin er einnig næm fyrir hávaða og rifrildi foreldra geta lagst illa í Vogarbarnið og bælt jákvætt og bjart eðli þess.
Vinamergð
Vogin er félagslynd og þarf í raun öðrum merkjum framar á fólki að halda. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt. Þegar allt leikur í lyndi er það á hinn bóginn opið og hresst og oft vinsælt og vinamargt, jafnvel svo að allt hverfið virðist búa heima hjá því.
Sjálfstraust
Stundum virðist sem Vogin hafi lítinn viljastyrk. Hún fær áhuga á ákveðnu máli en missir hann og leitar að nýju viðfangsefni. Ef hún mætir mótbyr eða vinir hennar eru ósammála henni eða gagnrýna gerðir hennar á hún til að hætta við verk sem hún er byrjuð á og ætlaði að vinna.
Sú hætta er til staðar að Vogin treysti á aðra án þess að leggja nokkuð af mörkum sjálf. Hún þarf því oft að læra að vera metnaðargjörn fyrir eigin hönd og standa á eigin fótum. Foreldrar Vogarbarnsins þurfa að vera á varðbergi gagnvart þessu og hjálpa því að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni, meðal annars með því að fela því ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku.
Þegar hin sígilda Vogarspurning: "Hvað finnst þér?" kemur, má til dæmis svara: "Hvað finnst þér sjálfri?" Síðan þarf að gefa Voginni næði til að vega og meta, áður en hún tekur ákvörðun. Foreldrar hennar þurfa því að varast að vera óþolinmóðir og grípa fram fyrir hendur hennar og ætla að stjórna henni um of. Ágætt er til dæmis þegar hún er að klæða sig að bjóða henni alltaf tvo valmöguleika. "Hvort viltu fara í rauðu eða gulu peysuna?" o.s.frv.
Félagslíf
Til að vel gangi með litla Vogarbarnið er mikilvægt að skapa því félagslega lifandi umhverfi, gefa því kost á að umgangast jafnaldra sína og taka þátt í félagslífi, þegar það eldist. Einnig er rétt að Vogin fái að rækta listræna hæfileika, ef hún sýnir áhuga og fái stuðning til að vinna úr hugsunum, hugmyndum og tjáningu.
Brynja Björk
Alexandra Rós
Benjamín Rökkvi
Sóldís María
Sigurdís Elsa
Júlíana
Kjartan Þór
Óðinn
|